Terms of service
WWW.FEELFINE.IS
Eigandi vefverslunarinnar er:
Feel Fine ehf, kt.470421-1500, Vsknr. 140871, Fellsbraut 17, S: 8623876, feelfine@feelfine.is
SENDINGAR SKILMÁLAR
Feel Fine ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Afhending vöru:
Allar pantanir eru póstlagðar einum virkum degi eftir að greiðsla hefur borist en það getur tekið 2 - 4 virka daga fyrir sendinguna að berast . Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Feel Fine ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Feel Fine ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Frí heimsending er á pöntunum 15.000.- kr og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru.
Verð á vöru og sendingakostnaður:
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum. Sendingakostnaður er Kr.1500 nema þegar verslað er fyrir 15.000 kr og yfir, þá fellur sendingarkostnaður á seljanda.
SKILAREGLUR
Að skipta og skila vöru:
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneigninarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Gölluð vara:
Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup.
ALMENNIR SKILMÁLAR
Almennt:
Neytendur eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun Feel Fine ehf, www.feelfine.is
Um notkun vefsíðu og vefverslunar Feel Fine ehf gilda skilmálar þessir. Með því að nota vefsíðu og vefverslun Feel Fine ehf samþykkir og viðurkennir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma.
Feel Fine ehf, kt. 470421-1500, er staðsett að fellsbraut 17,. Símanúmer er 862 3876.
Feel Fine ehf áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.
Verð:
Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.
Feel Fine ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.
Nákvæmni upplýsinga:
Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.
Greiðsluleiðir:
Hægt er að inna greiðslu af hendi í vefverslun með greiðslukorti. Feel Fine ehf er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt.
Valitor hf sér um alla meðhöndlun á kreditkortum og kortaupplýsingum.
Lög og varnarþing:
Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna skilmála þessa skal það rekið fyrir héraðsdómi Norðurlands vestra. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði gildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (nú nr. 77/2000), ákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem neytendur eiga rétt á í lögum um neytendasamninga byrja að líða þegar móttaka vöru hefur átt sér stað.